BloggInga ţórunn
ég hef nokkrum sinnum reynt að skrifa á þetta blessaða blogg.Ekki veit ég hvað þessi bloggsíða hefur svona á móti mér.
Fyrir vikið hef ég ákveðið að leita annarra leiða.
Það hljóta að vera til aðrar bloggsíður sem vilja taka við sögum mínum og hugleiðingum.
Þangað til...
Inga
BAAAAAInga ţórunn
var að skrifa massa færslu og hún hvarf.nenni ekki að skrifa aðra fyrr enn reiðin rennur af mér
NöldurInga ţórunn
ég á það til að nöldra óheyrilega.Í morgunn hringdi ég 5 sinnum í áskrift/dreifingu Morgunblaðsins.
Ég er ekki enn búin að fá Morgunblaðið í vinnuna og ég er að krepera!
Hvert skipti sem ég fer á mbl.is þá blasir forsíða sunnudagsblaðsins við mér...eins og algjör teaser...naananana þú færð ekki að lesa mig

GRRRRRR
Hringdi svo í múttu og fékk staðfest að hún var ekki heldur búin að fá moggann.!!!
Ef þetta væri þriðjudagsmoggi eða annar vikudagur en helgi væri mér drullusama
En við erum að tala um the holy paper.....sunnudagsblaðið....krossgátan!
Kemur annars ekki blaðið út í dag?
Þessir dagar fara annars í vinnuna....
Vinnutörn er út þessa vikuna. Svo fer senn að líða að
því að your truly verði bara búin að vinna summardjobbið!
Við feðginin erum búin að plana veiðiferð í lok ágúst. Morðóða Inga kemst þá í feitt.

Það er svo langt síðan ég fór í veiði...
ég hef horft öfundsaugum á alla túristana sem á hótelið mitt og eru nýkomnir úr Laxá og anga af fiskibrælu...mmmmmm
jæja,
nóg að sinni
luv
inga
NagdýrInga ţórunn
Mikið rosalega yrði ég hrædd við þetta nagdýr!http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=9&id=3628
Skil pabba betur og hans nagdýrafóbíu!
luv
Dagur engra verka!Inga ţórunn
Jeminn!ég er búin að vera í vinnunni síðan kl 0800 og ekki búin að gera HANDTAK!
Svarað tveimur póstum og skoðað ALLA www.perezhilton.com
jess, ég get verið rosalega sjallóv í frístundum
Las DV,Fréttablaðið og Morgunblaðið þar sem fjallað er um morðmálin.
Vá hvað það er mikill munur á fréttaskrifum á þessum miðlum..úff en jæja
Alla vega flóra :)
Helgin var nú viðburðarík, kannski að vanda hohohoho er svo vinsæl
En föstudagur var dagur erinda. Keypti í dittin og dattin...eyddi óhóflega miklum peningi.
En ég VARÐ að kaupa jakka,filter á linsuna mína og reflector!!!
Um kvöldið kom Helen til mín og við sundluðum í bjór og hvítvíni.
Bjössi og Húbert komu seinna um kvöldið og þá byrjaði skrallið
Stákarnir komu úr grillpartýi hjá Tóta. Tóti og Bjössi voru að segja upp og halda upp á viðburðinn þ.a.l.
Við vorum öll vel marineruð um miðnætti....vel marineruð.
Fórum niðrí bæ, drukkum meira heima hjá strákunum og svo fór ég í smá danstrylling með strákunum á Qbar (í ljós kom daginn eftir að bjössi var með RISA marblett eftir e-a stelpu sem var ósátt að hann væri að dansa við kærustuna hans...spes fólk í bænum)
Þegar ég komst loks á Celtic var ástkær Helen vinkona mín á rassinum...ég stórefa að hún hafi séð mig og tilburðir hennar við hitt kynið voru vægast sagt fyndnir..
Laugardagurinn var sveittur fram eftir degi. Ég hitti Helgu,Helen,Sunnu og Hlyn á American Style...einmitt staður sem æpir sveitt!
Ég mætti þar "hress" í P is for Porn bolnum mínum.
....smart
Um kvöldið var svo matarboð hjá Mávunum Helgu og Sunnu. Þær dröttuðust á fætur um 6leytið og framreiddu mat uppúr 10!
Það reyndist fatalt fyrir mig því ég var komin heim úr bænum kl 2 um nóttina með bullandi brjóstsviða enda með ónýt gen.....einnig kölluð DNAruslahaugurinn.
En það var fínt. Sunnudagurinn fór í Mosfellsbæ..og já ég fór alveg sjálfviljug í sveitina og eyddi deginum með Tótu og stelpunum!
Við Tóta mágkona rosa hressar ákváðum að fara með stelpurnar á rólo
Klæðum liðið í pollagalla og læti og sannfærum okkur að það hljóti nú að fara að stytta upp.....
Nei. Það gerðist nefnilega ekki. Það ringdi bara meira og meira þegar við komum á rólo. Ég sá fram á crash course í ungbarnasundi....
Loks ösnuðumst við mágkonurnar heim með börnin....sem voru þá holdvot og svöng.
Ég gleymdi mér svo með börnunum að ég gleymdi að fara út að borða með vinnunni!
Á Silfur!
Algjör lúði en hey
luv
Inga
BloggiđInga ţórunn
Jæja, ég gat ekki annað.Ég varð að fá mér nýtt blogg. Mér finnst líf mitt vera það spennandi að ég verði að skrifa um það.
Ég verð bara að byrja bloggið á yndislegri sögu sem ég heyrði í dag.
Um einmitt hana Sögu ;)
Hún Saga er dóttir vinkonu minnar. Saga er nýorðin 13 ára og mikið hormónaflóð sem veldur aumingja barninu miklum leiðindum.
En í gær sat umrædd Saga í sófa fyrir framan sjónvarpið og hágrét.
Mamma hennar stumraði yfir henni og spurði hvað væri nú að.
Í sjónvarpinu var einhver heimildamynd um norska svani sem stundðu fjöldasjálfsmorð og þ.a.l. hélt móðir Sögu að barnið væri að gráta yfir fiðurfénu.
Nei svaraði Saga með ekka. Ekki var hún að gráta yfir svönunum. Heldur þyrfti hún bara að gráta.
Mamma hennar knúsaði hana og sagði svona svona þetta liði hjá.
Stuttu síðar voru fréttirnar byrjaðar í sjónvarpinu og þá beinlínis hríndi Saga af sorg.
Mamma hennar spurði hvað gengi nú að.
Saga svaraði með djúpum ekka: " Gengið á ameríska dollaranum féll!!!"
Þessi saga fékk mig einmitt til að hrína af hlátri.
Mér datt í hug Saga þegar hún yrði stór þá yrði hún svona ofsalega tilfinninganæmur viðsktipafræðingur hjá Kaupþingi. Allir á skrifstofunni á pískra sín á milli.
" Suss, passið ykkur á Sögu í dag, Dollarinn er eitthva tæpur í dag..."
En vá. Ég man þegar ég var á minni gelgju þá var ég einmitt svona tilfinninganæm...í meira lagi!
Grét yfir sjónvarpsauglýsingum og Ally McBeal var ávísun á tilfinnalegt breakdown á miðvikudagskvöldum.
Hmm reyndar, í dag er ég enn alveg eins. Ég fæ í magann þegar ég horfi 6 seríu í Sex and the City.....finn fyrir tómarúmi á sálinni. Pæling hvort maður taki sig smá taki.
jæja
kveð að sinni
inga
